Ostakaka lífsins

Í tilefni þess að ég átti afmæli í gær bauð ég famelíunni í mat. Ég hægeldaði svínabóg og bjó til gómsætar bollur og hrásalat og framreiddi slæders með púlld pork eins og kaninn myndi orða það. Þarf að safna saman uppskriftunum fimmtíu sem ég notaði til að mixa saman matinn og setja uppskriftina hér inn því maturinn var delisjúss.

Í eftirrétt bauð ég uppá uppáhaldið mitt, ostaköku sem ég toppaði með toblerone og jarðaberjum. Þó mér líki ekki sérstaklega við jarðaber. Bragðið er gott en mér líkar ekki við mat sem segist vera sætur en reynist svo oft á tíðum vera vera súrt. Rétt eins og með mannfólkið.

Ég var beðin um uppskrift og ég auðvitað þurfti að safna saman upplýsingum og að auki gleymdi ég að taka mynd en vinur minn AI image generator aðstoðaði mig við visjúal hlutann svo færslan yrði nú ekki eintómur texti og til að poppa þetta aðeins upp.

Ekki dæma.

Ostakaka

Ostakaka með toblerone og jarðaberjum. Draumur minn í kökuformi
Prep Time 1 hour
Cook Time 1 hour
Course Dessert
Cuisine Mediterranean
Servings 10

Equipment

  • Smelluform Stærðin skiptir ekki máli krakkar mínir
  • Hrærivél Hvort sem er fansí eða handþeytari
  • 3 Skálar ish
  • Sleikja
  • 10 Smakkskeiðar Smakkaðu allt, alltaf og endalaust.
  • Bökunarpappír Ég nota hringlótta pappírinn fyrir airfryer því hann smellpassar í smelluformið.

Ingredients
  

  • 300 gr Digestive kex Virkar líka mjög vel með Lu kexi
  • 150 gr Íslenskt smjör
  • 250 ml rjómi
  • 400 gr rjómaostur
  • 1,5 tsk Vanilludropar
  • 100 gr flórsykur
  • 100 gr Toblerone "Venjulegt"
  • 100 gr Hvítt Toblerone
  • 100 ml Rjómi
  • 200 gr Jarðaber

Instructions
 

Prepp

  • Setjið smjörpappír í botninn á smelluformi
  • Takið saman hráefnin og áhöld og hafið við hendina.

Botninn

  • Myljið digestive í matvinnsluvél
  • Bræðið smjörið
  • Blandið saman og setjið í botninn á smelluforminu. Þrýstið vel niður og eilítið upp með hliðunum. Ef þið nennið því ekki. Setjið þá bara í botninn. Ég er ekki mammaín.
  • Setjið smelluformið í kæli á meðan þið haldið áfram á leið ykkar a himnasælu.

Ostakakan

  • Þeytið rjóman og setjið til hliðar
  • Hrærið saman rjómaost, vanilludropa og flórsykurinn
  • Blandið rjómanum saman við rjómaostablönduna í rólegheitum og skömmtum. Við viljum halda loftinu í rjómanum eins mikið og við getum. Því við erum prófessjónals.
  • Sækið nú smelluformið og smyrjið yfir kexblönduna. Setjið aftur inní kæli. Ég hef látið hvíla í klukkustund með góðum árangri en það er líka ljómandi gott að láta þetta sitja í kæliyfir nótt.

Toppurinn

  • Bræðið toblerone súkkulaðið ("venjulega") með 50 ml af rjómanum. Hægt er að gera það í vatnsbaði (skál sett ofan á pott með vatni á eldavélina og súkkulaðið sett ofaní og brætt). Ég notaði örbylgjuofninn, 20 sek og hræri, aftur 20 sek, hræri os.frv. Tók samtals 4 x 20 sek. Látið kæla örlítið og hellið svo jafnt og þétt yfir kökuna.
  • Skerið niður berin og setjið yfir kökuna
  • Bræðið hvíta tobleronið eins og þið gerðuð hér fyrir ofan. Látið kóla og dreyfið þessu með listræun hætti yfir kökuna. Setjið aftur inní kæli.
  • Njótið vel

Notes

Það er vel og hægt og mjög auðvelt að aðlaga þessa uppskrift eftir smekk. Hvort sem þið viljið sleppa súkkulaðinu og hafa aðeins ber. Jafnvel setja sultu og ber. Hún er líka góð ein og sér. 
Tried this recipe?Let us know how it was!