Smelluform Stærðin skiptir ekki máli krakkar mínir
Hrærivél Hvort sem er fansí eða handþeytari
3 Skálar ish
Sleikja
10 Smakkskeiðar Smakkaðu allt, alltaf og endalaust.
Bökunarpappír Ég nota hringlótta pappírinn fyrir airfryer því hann smellpassar í smelluformið.
Ingredients
300gr Digestive kex Virkar líka mjög vel með Lu kexi
150 grÍslenskt smjör
250 ml rjómi
400 gr rjómaostur
1,5 tsk Vanilludropar
100gr flórsykur
100 gr Toblerone"Venjulegt"
100gr Hvítt Toblerone
100 ml Rjómi
200 gr Jarðaber
Instructions
Prepp
Setjið smjörpappír í botninn á smelluformi
Takið saman hráefnin og áhöld og hafið við hendina.
Botninn
Myljið digestive í matvinnsluvél
Bræðið smjörið
Blandið saman og setjið í botninn á smelluforminu. Þrýstið vel niður og eilítið upp með hliðunum. Ef þið nennið því ekki. Setjið þá bara í botninn. Ég er ekki mammaín.
Setjið smelluformið í kæli á meðan þið haldið áfram á leið ykkar a himnasælu.
Ostakakan
Þeytið rjóman og setjið til hliðar
Hrærið saman rjómaost, vanilludropa og flórsykurinn
Blandið rjómanum saman við rjómaostablönduna í rólegheitum og skömmtum. Við viljum halda loftinu í rjómanum eins mikið og við getum. Því við erum prófessjónals.
Sækið nú smelluformið og smyrjið yfir kexblönduna. Setjið aftur inní kæli. Ég hef látið hvíla í klukkustund með góðum árangri en það er líka ljómandi gott að láta þetta sitja í kæliyfir nótt.
Toppurinn
Bræðið toblerone súkkulaðið ("venjulega") með 50 ml af rjómanum. Hægt er að gera það í vatnsbaði (skál sett ofan á pott með vatni á eldavélina og súkkulaðið sett ofaní og brætt). Ég notaði örbylgjuofninn, 20 sek og hræri, aftur 20 sek, hræri os.frv. Tók samtals 4 x 20 sek. Látið kæla örlítið og hellið svo jafnt og þétt yfir kökuna.
Skerið niður berin og setjið yfir kökuna
Bræðið hvíta tobleronið eins og þið gerðuð hér fyrir ofan. Látið kóla og dreyfið þessu með listræun hætti yfir kökuna. Setjið aftur inní kæli.
Njótið vel
Notes
Það er vel og hægt og mjög auðvelt að aðlaga þessa uppskrift eftir smekk. Hvort sem þið viljið sleppa súkkulaðinu og hafa aðeins ber. Jafnvel setja sultu og ber. Hún er líka góð ein og sér.