Setjið hakkaða tómata í minni pottinn og látið sjóða. Bætið við kryddum + hunangi við og látið malla saman við vægan hita á meðan restin er græjuð
1 Dós Hakkaðir tómatar, 1 tsk Svartur pipar, 2 tsk Kjúklingakraftur, 2 tsk Ítölsk kryddblanda, 1 tsk Þurrkaður kóríander, 1 msk Chili pipar, 1 tsk Hunang, 2 tsk Hvítlauksduft
Setjið 1 msk olíu í stærri pottinn. Þegar olían er orðin heit, setjið laukinn útí og steikið þar til hann er orðinn glær og mjúkur. (5 mín ca) Hrærið í af og til.
1 stk Laukur
Bætið við papriku og látið mýkjast í nokkrar mínútur með lauknum.
1 stk Paprika
Bætið við söxuðum hvítlauk og látið steikjast með lauknum.
3 stk Hvítlauksrif
Takið frá 1 dl af sósunni og setjið til hliðar.
Bætið afgangnum af sósunni við laukblönduna og lækkið hitan niður í 2. S.s. ekki lægstu stillingu en hérumbil.
Takið vökva úr pinto baunum (ég losa lokið og læt vökvan sigtast í gegnum lokið, það má alveg vera smá vökvi sem fer útí uppskriftina) Bætið Pinto baunum við tómata- og lauk blönduna sem er í stærri pottinum 1 Dós Pinto baunir
Rífið niður kjúkling (eða skerið niður í bita eða rífið - ef þið eruð að nota bringur eða læri - þið þurfið að elda fyrst samt !! Ef þið viljið rífa bringur er best að sjóða þær korter og láta kólna, þá rifna þær auðveldlega með aðstoð tveggja gaffla) Bætið kjúklingnum í tómatapintobaunalaukskássuna 1/2 stk Kjúklingur heill
Smakkið, hægt að bæta við sætu eða chili en þetta ætti að vera nokkuð fullkomið ef þið fylgduð fyrri skrefum.
Finnið eldfast mót. Ég nota eldfast mót sem mælist 30 x 20 cm
Leggið eina tortillu í formið og setjið 1/4 af tómatakjúklingapintoblöndunni í tortilluna og lokið henni eins ogo burrito. Leggjið sauminn á tortilluni niður. Þetta er smá bras en hefst með smá þolinmæði. Endurtakið við hinar þrjár tortilunar. 4 stk Tortillas (large)
Hellið 1 dl af sósunni sem þið tókuð frá áðan yfir tortillurnar.
Setjið rifna ostinn yfir tortillurnar og sósuna.
100 gr Rifinn ostur
Setjið eldfasta inní ofn á 200° í 25 mín eða þar til osturinn er orðinn brúnn og sexí.
Takið úr ofninum. Setjið ferskan saxaðan kóríander og saxaðan vorlauk yfir tortillurnar.
1 stk Vorlauk, 10 gr Ferskur kóríander
Berið fram með sýrðum rjóma og nachos. Jafnvel salati og guacamole (avacadoin voru ónýt þegar ég skar í þau sem er ein af þessum lífsins vonbrigðum sem við upplifum öll) Við borðuðum Enchaladas-in bara ein og sér með sýrðum.
1 dós Sýrður rjómi