Filed under: Bloggið
Ég og Júlli sitjum hérna á voðalega kósí kaffihúsi á Istegade og drekkum latte.
Gærdagurinn var frekar hektikk þar sem ég náði að sofna í hálftíma um nóttina og hef aldrei brugðið jafn mikið og þegar addi vakti mig og sagði að það væri korter í brottför – gekk allt vel og það er búið að vera yndislegt hérna. Íbúðin okkar er svaka kósí fyrir utan furðulega uppröðun á húsgögnum en það er önnur saga. Ég og Hanna komum í íbúðina um 2 í gærdag og sátum á tröppunum drukkum bjór og smirnoff ice og kjöftuðum frá okkur allt vit. Síðan komu Rúnar, Drusla og Júlli og síðan var græjað sig .. kviss bamm búmm og við skelltum okkur að borða með söru og mjööööög svo skrautlegri systur hennar sem kallaði rosa rosa mikið á júlla – með verstu first impressions sem ég hef séð á ævinni enda ofurölvi … aldrei gaman að vera fulli leiðinlegi kallinn – en þetta var mjög fyndið og ég er viss um að hún er topp manneskja eins og systir sín undir venjulegum kringumstæðum. Thelma og Addi mættu og Valdi og Magga – ég hélt að þjónninn myndi samt fá blóðtappa þegar hann var að taka pöntunina hjá 15 manna hóp og að borga reikninginn var eins og að verðmeta heilt fyrirtæki fyrir honum. Skelltum okkur svo á eitthvern stað sem er aðalmálið hjá rúnari en þá var fólkið orðið of vírað af þreytu og búið að sulla í bjór allan daginn …
Erum að fara á fund hjá CBS þar sem við fáum armböndin okkar – stúdentaskýrteinin og fleira. Ætla að vera rosalega dugleg að taka myndir – gleymdist í hasarinum í gær …
Grill og party með isup studentum í kvöld.
Viva la denmark.