Filed under: Bloggið
Þótt ótrúlegt megi virðast þá er kostnaður við að leigja … 28 fm íbúð hérna í afdölum rúmur 50000 kall. Að vísu fær maður húsaleigubætur. en sjitt hvað það er dýrt að leigja hérna.
Nú í töluðum orðum eru nemendur skólans komin með nóg og vona ég að gripið verði til aðgerða vegna leiguverðsins hérna á Bifröst. 50.0000 krónur (íslenskar) fyrir 28 fermetra. Ekki ofn, ekkert herbergi. Bara stúdíó-íbúð með örbylgjuofni. Þetta er bara rugl.
Ég er alveg á því að kvarta þessa dagana. Lét strák-greyið í Task heyraða þegar ég hringdi í dag og hann sagði mér að hringja aftur á morgun. Vona að þeir séu allir með hiksta og geti ekki sofið í nótt.
Byrja svo að vinna á föstudaginn, hef notið þess til þess ítrasta að vera í fríi hérna á Bifröst… sofa eins og ég vill. Fara í bootcamp, á fundi hjá skólafélaginu, hjá sjálfstæðisfélaginu og bara að tjilla alveg almennt.
Síðan er búið að plana núna 23-25 júní Rafting ferð niður eitthverja jökulá. Vonandi verður mikið djamm og mikið gaman. Lýst samt ekkert á þessar rafting sögur sem ég hef verið að heyra. En fakk it.