Filed under: Bloggið
Gaman var í grindavík, heldur betur. En eins og við töluðum um í gær, þá er maður farin að vera svo vanur að búa í svona vernduðu umhverfi að það hálfa væri mikið. Týndi nefnilega töskunni minni á lau.kvöldið og þegar ég vaknaði um morguninn, var fyrsta hugsun mín. Hvert sendi ég póst.??? Því miður eru ekki öll bæjarfélög með póstgrúbbu eins og bifröst þannig að ég gat nú ekki bjargað þessu með póst á íbúa í grindavík eða álíka. En tuðran fannst í festi og allir lifðu hamingjusamir til æviloka.
Fór annars á Fund hjá Sjálfstæðisfélaginu hérna í borgarbyggðinni í gær á hótel hamar þar sem framboðslisti Sjálfstæðismanna var kynntur. Bifrestingar ættu að vera stoltir hve félagið er að vaxa og eru með 2 aðila á lista, 5 sæti og 8 sæti. Eftir sameininguna á sveitafélögunum er svoldið óljóst hvernig skipting er, en í eitthverjum sveitunum eru framsóknarmenn í meirihluta. Síðustu kostningar í borgarbyggð voru samt svakalegar. Þar sem í fyrstu talningu voru Sjálfst.menn með 4 menn inn. En talið var aftur, og sagði mér spekingur í gær að 1 atkvæði skipti sköpum á því að aðeins 3 fóru inn. Það er furðulegt hvað maður gerir sér ekki grein fyrir því hvað hvert atkvæði á milli flokka hérna á landsbyggðinni hefur í raun miklu meira vægi heldur en t.d í reykjavík þar sem munurinn er í flestum tilfellum meiri. En í þessum fimm sveitum sem samþykkt hefur verið að sameina voru árið 2004, 3511 manns með lögheimili. (eitthver uppsveifla en við látum það liggja á milli hluta.)
En það er á hreinu að það verður mjög gaman að starfa fyrir flokkin fyrir sveitastjórnarkostningarnar.
Á morgun er svo aðalfundur hjá Miðgarði þar sem ég mun bjóða mig fram í stjórn.
En nú tekur við reifun á dóm sem ég þarf á morgun að flytja munnlega ásamt hópnum mínum í lögfræði. …. Á ekki eitthver dóm nr 147/1996 … reifaðan.. prittí prittí plís.
Áfram X-D.