Filed under: Bloggið
Er búin að vera að taka Coupling from the start núna síðustu daga og núna er ég stödd eitthverstaðar í miðjunni
á þriðju seríu og ég get svo svarið fyrir það ég hlæ og hlæ upphátt eins og mér sé borgað fyrir það í blíðu a.m.k
Það er ekkert meira hressandi heldur en þættir sem fjalla um samskipti kynjanna, þar sem ég get ekki ýmindað mér
hvað það er sem fær karlmenn til að hrekjast frá mér í hrönnum hef ég fundið þessa nýju leið til að díla við ástandið með því að hlæja úr mér allt vit um eitthvað sem er fundið upp í breskri skrifsstofu eflaust yfirfullu
af singúl fólki sem á jafn bágt með þessi samskipti og eg (og mér til varnar stórs hluta kvk jarðbúum.)
En annars er komið hellingur á plönum á döfina sem er verið að vinna úr fyrir sumarið.
Fiðringurinn fyrir sumarið er komið og eina planið sem komið er að djamma svona 90% minna en það síðasta.
Usss. síðasta sumar, var svakalegt en svo skemmtilegt, en ó hvað ég á eftir að sakna þess að pynta áfram unglinga í bæjarvinnunni, reita arfa í rigningu og liggja í sólbaði í góðu veðri…
… en ogvodafone hefur yfirhöndina að sjálfsögðu þar sem þetta er bjútífúl vinnustaður.
En að vinna úti, úfff, mig langar að gráta þegar ég hugsa til þess að vera læst inní kjúpikol allt sumarið.
Svo er nýtt plan komið á döfina, þar sem ég er alveg ógeð á reykvísku djammi og ruglinu sem fylgir því mun leið mín liggja með henni fjólu minni og fríðu föruneyti til vestmannaeyjanna þar sem við ætlum að sameina kraftana á hippaballi sem er haldið 23 apríl.
Enn sem komið er ég búin að hálfpartinn ná að plata “kærastan” (ég og gummi erum sko á föstu, en meigum sofa hjá öðru fólki og við förum ekki í óþarfa sleika) með.
Vonandi næ ég restinni af grindvíkingunum líka yfir og þetta verður ógleymanlegt.
Langar eikkverjum með ?