Filed under: Bloggið
Jæja ég hélt nú að seint yrði gengið fram af mér eða hvort gengið yrði yfir mig yfir höfuð.
En piparsveini nokkrum tókst það að lokum og hefur heiðurinn enginn annars en maður sem ég hef nýverið kynnst og mun ég sennilega umgangast töluvert á næstunni.
Maður þessi sem vill ganga undir nafninu “piparsveinninn” er án efa maður sem vill vera undirrót allra saumaklúbbs-umræðna hjá síngúl kvennfólki sem maðurinn sem gekk á línuna án þess að nokkur manneskja hafði haft hugmynd um málið, illi maðurinn sem seinna mær deyr einn í þakíbúðinni hjá chandler og monicu.
Hérna er greinin sem hann sendi mér. Ég ákvað að pósta bara einni í einu til að leyfa lesendum að melta málið.
Sælir ungu menn,
Skólinn nýbyrjaður og mikið af nýjum, vænlegum stelpum. Það er því við hæfi að fara yfir nokkur atriði sem þið þurfið að hafa í huga þegar þið hafið fundið stelpu, nú eða þær stelpur sem þið hafið áhuga á. Reynsla okkar er misjöfn að ýmsu leyti en það eru engu að síður nokkur atriði sem koma upp í hvert skipti sem við látum til skarar skríða.
Í fyrsta lagi snýst þetta jafn mikið um magn og gæði. Það þýðir ekki að binda alla von við einhverja eina stelpu sem svo jafnvel dregur ykkur á asnaeyrunum allt árið. Ef hún harðneitar að umgangast ykkur þá gefur það ákveðna vísbendingu um að erfitt geti reynst að fá hana til að fara á mörg stefnumót, sama hvað þið reynið. Í þeim tilvikum er þolinmæði ekki dyggð. Því er betra að vera alltaf með að minnsta kosti þrjár sem koma til greina. Því fleiri því betra. Þetta getur þó reynst snúið því þær mega að sjálfsögðu ekki vita hver af annarri. Þið getið því gleymt því að reyna við heilan vinkvennahóp. Þær tala saman og svoleiðis er fljótt að fréttast. Við erum hins vegar það heppnir að nokkrar brautir eru í skólanum og umgengni á milli bekkja og sérstaklega árganga er ekkert sérstaklega mikil. Finnið því til dæmis eina á grunnskólabraut, aðra á þroskaþjálfabraut og þá þriðju á leikskólabraut. Ef þið treystið ykkur til þess þá er hægt að vera með eina á hverju ári á hverri braut. Það er undir ykkur komið.
Varist gemsa eins og hægt er. Það er engan veginn hægt að treysta því að skilaboðum sé eytt eftir heiðarlega tilraun til þess að sannfæra einhverja unga stúlku um að þið séuð hinir bestu menn. Ef þið hins vegar viljið nota skilaboð við þessar tilraunir þá mæli ég hiklaust með því að nota nokkur númer. Það kostar sama og ekkert að fá sér 5-6 frelsisnúmer. Notið eitt á hverja stelpu. Þetta krefst þess hins vegar að þið haldið utan um hvaða númer tilheyrir hverri stelpu. Þannig getið þið alltaf hent númerinu ef einhver fer að sýna sms með misheppnuðum kommentum frá ykkur. Harðneitið því síðan að eiga númerið og þetta fellur um sjálft sig.
Þar sem ég er þess fullviss að þetta á eftir að skila sér í því að nokkrar stelpur samþykkja að fara eitthvað með ykkur, þá eru nokkrir punktar sem hjálpa ykkur að ná því marki sem þið setjið ykkur. Það er mikilvægt að skipuleggja hvað það er sem þið ætlið ykkur með viðkomandi stelpu. Ef þetta er stelpa sem ykkur langar til að hitta nokkrum sinnum en hafið ekki hugsað að fara með í jólaboð til foreldranna þá skiptir mestu að hafa hraðar hendur. Eftir ákveðinn tíma, að jafnaði um mánuð, fer hana að gruna að þið hugsið meira um kynlíf en samband og fer að gera kröfur um að hitta vinahópinn og foreldrana. Eftir það getur reynst erfitt að sannfæra hana um að sinna ykkur eins og áður og mjög fljótlega flosnar upp úr þessu. Eins ágætt og þetta getur verið í nokkur skipti þá kemur að þeim tímapunkti þar sem við viljum sjálfir meira. Þegar þar að kemur er rétt að henda/leggja aukanúmerunum og einbeita sér að þeirri stelpu. Þetta skal þó aldrei gert fyrr en eftir að minnsta kosti eitt stefnumót. Nú fer að skipta máli hvers konar kvöldi þið stingið upp á við hana. Það þýðir ekki lengur að stinga upp á því í byrjun að þið farið ekkert út heldur komi hún í heimsókn til þín og þið finnið upp á einhverju skemmtilegu. Meira að segja einföldustu stelpur sjá í gegnum þetta.
Farið út að borða, á safn, í Bláa Lónið eða einhvern annan opinberan stað þar sem þið hafið tækifæri til að tala saman um daginn og veginn. Ef þið farið á safn og vitið ekkert um það sem er til sýningar þá borgar sig ekki að þylja upp eitthvað sem þú last í bók daginn áður. Það kemur alltaf í hnakkann á manni síðar og stelpur eru alltaf líklegri til að þekkja þetta en þið hvort eð er. Látið því eins og þið hafið gaman af því að skoða eitthvað framandi með henni.
Ef þið farið út að borða hafið þá með ykkur kort og peninga. Það er ekkert verra en að vera að fara að borga (þarf varla að taka fram að þið borgið alltaf því konur vilja alls ekkert jafnrétti á þessu sviði) fyrir matinn og þá kemur eitthvað vesen með kortið. Það eru fáar fljótlegri leiðir til að klúðra sambandi en að vera alltaf í vandræðum með peninga þegar þið ætlið að borga eitthvað. Ekki samt borga matinn með vöndli af peningum, það er eitthvað hálf dularfullt að vera með allt of mikið reiðufé á sér, heldur hafið þið þetta til vara ef eitthvað kemur upp með kortin. Þannig trúir stelpan ykkur þegar þið talið um kortavandræðin. Þið komuð jú með peninga til vara af því að þið “vissuð” af þessu vandamáli.
Í annað eða þriðja skiptið sem þið ætlið að hittast er kominn tími til að elda fyrir hana. Þá heldur hún sjálfkrafa að þið séuð mjög sjálfstæðir fyrir utan að þetta svínvirkar á verðandi tengdamömmu. Nú vandast hins vegar málið því flestir okkar kunna ekki að elda annað en pylsur og pasta. Á því er hins vegar einföld lausn. Finnið ykkur bók með Jamie Oliver og kaupið hana. Ef einhverjir ykkar vita ekki hver hann er á lesið ykkur til um hann á netinu strax, það gengur ekki að þekkja Peter North, Rocco Siffredi og félaga en hafa aldrei heyrt um Jamie Oliver. Gaukur sem eldar þannig að meira að segja ég og þú getum eldað eftir uppskriftunum án mikilla vandræða. Bók eftir hann lítur líka ágætlega út í eldhúsinu hjá ykkur ef stelpa kemur í heimsókn. Farið hins vegar algerlega eftir uppskriftunum. Það boðar ekki gott að ætla að vera með eigin afbrigði af uppskriftum eftir aðra. Það er reyndar ekki vitlaust að horfa á nokkra þætti með honum. Þeir eru sýndir á nokkrum sjónvarpsstöðvum sem nást hérna. Þetta er hins vegar ekki eitthvað sem þið viðurkennið. Það er flott að eiga bók með honum en rokkstuðullinn lækkar allsnarlega ef þið verðið vísir að því að sitja og horfa einir á matreiðsluþætti í sjónvarpinu.
Eftir matarboðið ættuð þið að vera komnir vel á leið með þessa ágætu stúlku og kominn tími til að skipuleggja framhaldið á sambandinu. Það tökum við hins vegar fyrir síðar þegar þið eruð búnir að þrengja hópinn sem þið ætlið að velja úr.
Gangi ykkur vel.
Kveðja,
Piparsveinninn