Filed under: Bloggið
Fyrir ykkur sem skylduð ekki dreka brandarann, þá liggja málin þannig.
Þar sem ég hafði lítið að segja í gær og nennti bara einfaldlega ekki að blogga ákvað ég að gerast drekinn for a day or so (sveppi í svínasúpunni) og vera nörd. Það gekk bara ágætlega, þótt ég hafi ekkert spilað counter strike sem er líka svo asnalegur leikur að það hálfa væri mikið. Ef ég leggst eitthvertíman það lágt að spila þetta rusl þá má hinn sami stinga ósmurðum banana uppí rassinn á mér og leiða mig í bandi á fjórum fótum þannig niður laugarveginn.
Er komin með miða á Pixies (takk óli minn) og Violent femmes (takk elmar minn) en það er eitt sem ég verð þótt ég hafi ekki efni á því þar sem ég er að fara út eftir rúma viku og það er að fá mér miða á deep purple. Mig langar svooooooooo, þannnig að ef það er eitthver góðhjartaður þarna úti sem langar að bjóða mér… þá alls ekki vera feimin.
Furðulegt samt hvað það er sniðugt að vera ekki með internet heima hjá sér, ég akjúallí les skólabækur sem ég á að vera löngu búin að og búin að gera allt í herberginu sem þurfti að gera. Að huxa sér hvað maður er ótrúlega iðinn þegar fráhvarfseinkeninn fara að kikka inn.
Fékk samt heimsóknir í gær frá uppáhaldsfólkinu mínu henni betu (sem fékk klám hjá mér) og hönnu (sem fékk ekki neitt hjá mér, nema ánægjuna af félagskap mínum) og get ég ekki annað en sagt það að það að hafa popptíví er sálubjargandi. Horfði á myndbönd þaðan allan daginn í gær, sendi meiraðsegja inn sms til að vinna dvd diskinn frá í svörtum fötum og ég VANN EKKI … ég meina hvað er það ? Sá vídjó í gær sem sat doldið í mér þar sem mér hefur alltaf fundist emmmennnemm alveg hrottalega leiðinleg týpa, hrokagikkur sem höndlaði ekki frægðina og með attitude á við tóman ískáp. En viti menn, sá þar myndband sem byrjar á því að hann er í ljósabekk og hómíarnir eru að reyna að komast inn og tala við hann.. þetta fer bara með hverju atriðinu batnandi og lít ég núna allt öðrum augum á þennan mann og er þetta án efa besta myndband sem ég hef séð í langan langan tíma, ég elska fólk sem hefur húmor fyrir sjálfum sér.
En núna ætla ég að reyna að rimpa af eins og 10 bls ritgerð um kleópötru sem ég þarf að skila á fimmtudaginn, fara í löntsj með betu og dansa svo nakinn við prince, mary j blidge, bruce springsteen og fleiri skemmtilega mjúsíkanta
kveð í bili
majae