Filed under: Bloggið
úff á barmi taugaáfalls þá er ég að fara til eyja á morgun, er orðin erfið í umgengni og tala ekki um neitt annað en eyjar (þeim sem fara ekki þangað til mikils ama). En þessar elskur taka mér sem betur fer eins og ég er.
Ingó oldschool, fór af stað í gærkvöldi og þarf ég deffenetly að vera í góðu sms sambandi við hann þegar líða tekur á kvöldið, svona til að biðja hann um að halda öllum sætustu gæjunum burtu frá húkkaraballinu
Í gær ákváðum við og mútta mín gamla að skella okkur í ikea að skoða barnarúm, þar sem krakkinn er orðin næstum 3ja er kominn tími á alvöru rúm fyrir þessa elsku. Endaði með að sú gamla verslaði endalaust að nýju drasli handa eina barnabarninu sínu (sem er nottlega mjög gott mál
) Þakka þér fyrir það gamla mín.(ekki eins og hún lesi þetta, hún kann ekki einu sinni að kveikja á video-tæki, hvað þá að oppereita einhverja tölvu)
Kvöldinu var svo eitt í videogláp með honum Óla Stefáni, grindavíkur-vini mínum. Við horfðum á Terminator 1, sem er btw mjög góð mynd, ég á bara T2 og það er nottúrulega allt annað tóbak. Verður gaman þegar ég og Óli Té skellum okkur á T3 (minnir að planið sé að sjá hana næst), það var annaðhvort T3 eða Charlies Angels.
Ætli mar geti fengið ritstíflu ef maður er bloggari ? Allavega er ég einhvað óvenju andlaus þessa dagana, en varð að láta stalkerinn minn vita af afdrifum minna daga svo hann fengi nú ekki taugaáfall. Bætti svo við (auk stalkerins) 2 nýjum linkum, (spurning um að finna eitthvað nett betra skipulag á þessa linka mína).. en já.. skellti honum Óskar-i og Finni hjá mér, báðir ýkt skemmtó, svona oftast allavega
Nú verður löng pása hjá frúnni, þar sem ég er að fara til eyja, ef það fór framhjá einhverjum. Er að reyna að plata leynivin minn til að blogga fyrir mig, en hann er eitthvað tregur til. Reyni að lokka hann með einhverskonar tilboðum sem hann getur ekki neitað.
Lifið heil.